H.H. the 14th Dalai Lama
 
Tenglar
 
Hans heilagleiki 14. Dalai Lama á Íslandi

Hinn merki friðarleiðtogi Dalai Lama hefur haft djúpstæð áhrif á fjölda fólks og snert hjörtu milljóna manna með boðskap sínum og geislandi persónuleika. Það var félaginu Dalai Lama á Íslandi mikill heiður að geta boðið Dalai Lama til Íslands í fyrsta skipti, en heimsókn hans stóð frá kvöldi 31. maí og fór hann af landi brott snemma morguns 3.júní 2009 ásamt ellefu manna föruneyti sínu.

Dagskrá heimsóknarinnar hófst með því að Dalai Lama tók þátt í samtrúarlegri friðarstund í Hallgrímskirkju í boði Hr. Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, á annan dag Hvítasunnu. Fulltrúar allra stærstu trúfélaga landsins voru saman komnir á friðarstundinni sem var einstaklega vel heppnuð. Var Hallgrímskirkja full út að dyrum þennan dag og hafði Dalai Lama það á orði að hann hafi verið mjög snortinn af góðum móttökum gestanna í Hallgrímskirkju.

Þann 2. júní heimsótti Dalai Lama Háskóla Íslands. Eftir ávarp frá Kristínu Ingólfsdóttur rektor, ávarpaði Dalai Lama starfsmenn og nemendur skólans og tók þátt í pallborðsumræðum í Hátíðarsal ásamt prófessorum af Hugvísindasviði. Viðstaddar voru einnig Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Eins og daginn áður komust færri að en vildu til að hlýða á umræðurnar, en þeim var einnig varpað á skjái fyrir framan Hátíðarsal Háskólans fyrir mannfjöldann sem safnast hafði saman þar. Upptöku af umræðunum má sjá á heimasíðu Háskóla Íslands: http://www.hi.is/en/myndskeid/dalai_lama

Þann sama dag þáði Dalai Lama boð forseta Alþingis, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, um að heimsækja Alþingi. Ritaði hann kveðjur til íslensku þjóðarinnar í gestabók Alþingis og voru honum færð Hávamál að gjöf ásamt hraunmola úr Almannagjá. Eftir skoðunarferð um húsið sat Dalai Lama fund með utanríkismálanefnd Alþingis þar sem fram fóru líflegar umræður m.a. um málefni Tíbets, umhverfis- og mannréttindamál.

Deginum lauk með fyrirlestri Dalai Lama í Laugardalshöll þar sem hann fjallaði um lífsgildi, viðhorf og lífshamingju og svaraði spurningum áhorfenda. Á undan fyrirlestrinum var honum færð tónlistargjöf frá Hilmari Erni Hilmarssyni, Páli frá Húsafelli, Steindóri Andersen og meðlimum úr Sigur rós. Kynnir á fyrirlestrinum, sem skipulagður var af félaginu Dalai Lama á Íslandi, var María Ellingsen leikkona. Hægt verður að nálgast upptöku af fyrirlestrinum með íslenskum texta hér á síðunni mjög fljótlega.

Þéttskipuð dagskrá heimsóknar Dalai Lama innihélt einnig fundi með Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra, Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra og Björgvini G. Sigurðssyni fyrrum viðskiptaráðherra. Auk þess var haldinn fundur þar sem samtökin Vinir Tíbets, hópur Tíbeta og Mongóla á Íslandi ásamt sjálfboðaliðum gafst tækifæri til að hitta Dalai Lama, ásamt því sem hann sat fyrir svörum blaða- og sjónvarpsmanna frá öllum helstu fjölmiðlum landsins. Færðu Vinir Tíbets Dalai Lama peningastyrk sem renna mun óskiptur til móttökustöðvar tíbeskra flóttamanna í Dharamsala á Indlandi.

Er aðstandendum heimsóknarinnar efst í huga þakklæti til H.H. Dalai Lama, fylgdarliðs hans og til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn við að gera heimsóknina að veruleika.

Myndasyrpa frá heimsókninni á Mbl.is:
http://www.mbl.is/mm/frettir/myndasyrpa.html?cat_id=4;album=825;img=22487&ref=fprenningur

Umfjöllun um heimsóknina á vefsíðu Dalai Lama:
http://www.dalailama.com/news.380.htm http://www.dalailama.com/news.381.htm

Photographs of Iceland by Trey Ratcliff
Photograph of Dalai Lama by Ralf Tooten